Um Noršur-Siglingu
Saga Norður-Siglingar nær aftur til 1994 þegar bræðurnir Árni og Hörður Sigurbjarnarsynir keyptu 20 tonna eikarbát, m/b Knörrinn og komu með til Húsavíkur.
Upprunalegi tilgangurinn var sá að bjarga skipinu frá eyðileggingu.
Fram að þeim tíma hafði hvílt sú kvöð á skipum sem tekin voru út úr hefðbundinni útgerð að þeim skyldi fargað.
Smíði slíkra báta hafði lagst af og ódýrari efni höfðu tekið við af eikinni, svo sem plast, ál og stál.
Mikilvægt var að bjarga því sem eftir var af þeirri verkþekkingu sem til þurfti til viðhalds og smíði slíkra báta en þar sem slík verk eru dýr þurfti að finna bátnum nýtt hlutverk.
Hvala og náttúruskoðun var svarið og sigldi Knörrinn með 1.700 farþega fyrsta sumarið.
Norður-Sigling var fyrsta fyrirtækið til að setja upp daglegar áætlunarferðir í hvalaskoðun á Íslandi.
Fljótlega kom það í ljós að þarna var um afþreyingu að ræða sem slá myndi í gegn og ekki síður þótti báturinn henta til farþegaflutninga og eftir að fjöldi þeirra hafði margfaldast upp í 5.600 manns sumarið 1996 var ákveðið að kaupa annan bát. Þá hafði Norður-Sigling ehf. verið stofnað og voru eigendur þess 4 eða þeir bræður ásamt, Heimi Harðarsyni og Hótel Húsavík með Pál Þór Jónsson í broddi fylkingar. Síðar var hlutur Hótelsins keyptur upp af hinum.
Haukur var annar bátur fyrirtækisins og var fyrirtækið með tvo báta í rekstri út sumarið 1998 en þá var stærri bátur, Náttfari keyptur og kom hann í rekstur sumarið eftir.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins, Gamli Baukur höfðu þá
risið niður við höfnina og flotbryggja framan hans var tekin í notkun sem gjörbreytti allri aðstöðu. Gamla Bauk,
var ætlað að gera strandmenningu svæðisins og sjósókn Húsvíking skil en jafnframt var hafinn veitingarekstur í
húsinu sem stendur enn þann dag í dag.
Lengi hafði áhugi á siglingum blundað meðal forsvarsmanna fyrirtækisins og lagður var grunnur að því að breyta einum bátanna í tveggja mastra skonnortu. Skrokklag Hauks þótti ákjósanlegt og eftir miklar breytingar og uppsetningu á reiða rann hið glæsilega fley niður úr slippnum á Húsavík, í júní 2002.
Hið sama sumar var fjárfest í 4. bát fyrirtækisins en þá varð fyrir valinu tæplega 30 tonna bátur sem hafði áður verið m.a. notaður til hrefnuveiða. Sá bátur fékk nafnið Bjössi Sör, til heiðurs Sigurbirni Sörenssyni föður Árna og Harðar sem frá upphafi hefur ásamt konu sinni Hildi Jónsdóttur verið fremstur meðal jafningja í því að byggja fyrirtækið upp.
Fyrirtækið, sem hefur frá upphafi verið í forystu hvað varðar þróun hvalaskoðunar á Íslandi hefur hlotið bæði
innlend og alþjóðleg verðlaun fyrir starfsemina. Forráðamenn Norður-Siglingar hafa það áfram að megin markmiði að byggja upp umhverfisvæna ferðaþjónustu á Húsavík.










