Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Algengar spurningar

1. Þarf ég að bóka fyrirfram?

Já, við mælum með því þar sem mikil eftirspurn er eftir mörgum ferða okkar. Nokkurra daga fyrirvari ætti að nægja, jafnvel á háannatímanum í júlí og ágúst.

 

2. Hvernig bóka ég?

Í síma: 464 7272

Með tölvupósti: info@nordursigling.is
Hér á heimasíðunni.

Með faxi: 464 2351

 

3. Sjáum við örugglega hvali?

Nei, en möguleikarnir eru mjög miklir og með því mesta sem gerist í heiminum. Ef svo ólíklega vildi til að þú sæir ekkert í ferðinni, bjóðum við þér aðra ferð þér að kostnaðarlausu.

 

4. Hvað komum við til með að sjá?

Hver ferð er einstök og engar tvær ferðir eru eins. Hnúfubakur og hrefna eru algengustu hvalirnir. Höfrungur (hnýðingur) og hnísa eru mjög algengar tegundir á Skjálfanda og einnig sést Steypireyður nokkuð oft, þá sérstaklega í júní og byrjun júlí. Auk hvalanna er margar tegundir fugla að sjá svo sem lundar, hafsúlur, langvíur, álkur, fýlar, kríur, skúmar, kjóar og skarfar.

 

5. Hversu löng er ferðin?

Ferðin tekur um 3 tíma en gæti þó lengst eða styst um u.þ.b. 20 mínútur.

 

6. Hvað kostar í ferðina?

Verð fyrir fullorðna: €54/8.900 ISK. 

7-15 ára: €22/3.600 ISK.

Börn 0-6 ára ferðast frítt.

 

7. Hvað er gert ef veður og sjólag er ekki í lagi?

Öryggi ykkar er sett á oddinn. Ef aðstæður eru ekki fullnægjandi er ferðinni aflýst. Ef þið eruð að koma langt að sama daginn, ráðleggjum við ykkur að hafa samband við okkur til að athuga með aðstæður.

 

8. Ef ferðinni minni er aflýst er bókun mín þá færð á næstu ferð?

Nei, því miður. Þegar ferð er aflýst gerum við okkar besta til að koma ykkur á næstu ferð og gengur það oftast. Hins vegar þarf að hafa samband við bókunardeild og biðja um flutning á bókuninni.

 

9. Hvenær er besti tíminn til að fara í hvalaskoðun?

Ómögulegt er að segja til um það. Veður og sjólag hefur mikið um það að segja hversu vel gengur að skoða hvalina. Einnig fer fjöldi hvala og tegunda í flóanum eftir fæðuskilyrðum hverju sinni sem breytast ört og erfitt er að spá fyrir um.

 

10. Hvernig föt er best að taka með sér?

Mikilvægt er að klæða sig eins vel og mögulegt er og vera í lokuðum skóm. Það getur oft verið mjög kalt úti á sjó í þrjá tíma. Um borð er einnig aukafatnaður, kraftgallar og regnkápur, ef þörf er á.

 

11. Bjóðið þið upp á ferðir til Grímseyjar?

Við erum ekki með áætlun til Grímseyjar en við getum sett upp ferðir fyrir hópa. Einstaklingar geta hugsanlega fengið að taka þátt í slíkum ferðum og því sakar ekki að spyrjast fyrir annað hvort í miðasölunni, gegnum síma eða tölvupóst. Yfir sumarið bjóðum við einnig upp á tveggja daga siglingu þar sem komið er við í Grímsey. Sjá nánar.

 

12. Er allt í lagi að taka ung börn með í ferð?

Lítil börn eru velkomin og það er sjálfsagt að taka kerrur með um borð. Við mælum með því að klæða börnin vel en einnig að spyrjast fyrir hvernig veður og sjólag er áður en haldið er af stað með mjög lítil börn.

 

13. Er aðgengi fyrir hjólastóla um borð?

Já, áhöfnin aðstoðar ávallt fólk í hjólastólum en ágætt er að láta vita fyrir fram.

 

14. Eru seldar veitingar um borð?

Nei, við seljum ekkert um borð. Það er hins vegar velkomið að taka nesti með sér. Á landleið er svo boðið upp á heitt kakó og kanilsnúða.

 

15. Má reykja um borð?

Nei, við biðjum farþega okkar vinsamlegast um að reykja ekki í hvalaskoðunarferðum.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld