Gamli Baukur
Veitingastaðurinn Gamli Baukur er staðsettur við höfnina á Húsavík með einstakt útsýni yfir hafnarsvæðið. Staðurinn býður upp á fjölbreyttan mat, unninn úr besta fáanlega hráefni úr héraðinu og eru sjávarréttir hafðir í hávegum enda þótt boðið sé upp á allrahanda rétti. Mannlífið blómstrar á Gamla Bauk, lifandi tónlist, dansleikir, útsendingar kappleikja á breiðtjaldi og aðrar uppákomur skapa skemmtilega og afslappaða stemningu þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Sjá nánar á www.gamlibaukur.is



























