Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

5. desember 2011

Haustferš Noršursiglingar

Þann 2 Desember bauð Norðursigling þeim starfsmönnum sem leggja það á sig að þreyja Þorrann og Góuna hér Norðanlands til árlegrar haustferðar.

 

Lagt var af stað frá höfuðstöðvum fyrirtækisins kl 08 föstudaginn 2. desember í stilltu og fallegu veðri með hæfilegan snjó á jörð og stefnan er sett á Siglufjörð til að byrja með.

 

Á leiðinni var pikkað upp fólk bæði á Akureyri og Dalvík en vel fyrir hádegi var komið í hlað á Síldarminjasafninu á Siglufirði þar sem Örlygur Kristfinnsson safnstjóri tók á móti okkur. Örlygur er hugmyndasmiðurinn að safninu og hefur unnið ötullega að uppbyggingunni alla tíð og tók hann að sér að leiðsegja hópnum þetta glæsilega safn og að sjálfsögðu fengu allir að smakka á síld og rúgbrauði.

 

Síðan lá leiðinn til Rauðku og þeirra glæsilegi húsakostur skoðaður. Stórhuga menn þar á ferð.

 

Í hádeginu var komið á Hótel Brimnes á Ólafsfirði og snæddur dýrindis plokkfiskur með meiru og þess má geta að það er aðallega í samvinnu við fólkið sem stendur að Hótel Brimnesi sem einn af bátum Norðursiglingar bauð upp á hvalaskoðun á liðnu sumri.

 

Eftir hádegið var farið yfir á Dalvík og bærinn skoðaður undir leiðsögn betri helmings Guðmundar smiðs, Helgu. Einnig var tekinn smá rúntur inn Svarfaðadalinn.

 

En nú lá leiðinn á Árskógssand og bjórverksmiðja Kalda skoðuð vandlega.

 

Akureyri var næsti áfangastaður og Keiluhöllinn heimsótt. Skipt var í lið og keppt í þeirri virðulegu íþrótt Keilu. Allir höfðu gott af þeirri hreyfingu og allir með góða matarlyst að lokinni keppni sem var eins gott því nú beið dýrindis jólahlaðborð á Icelandear Hótelinu.

 

Þar var síðan gist og haldið aftur til Húsavíkur eftir morgunmat með stuttri viðkomu í samgönguminjasafninu á Ystafelli í Kinn.

 

Það var ánægður hópur sem steig út úr rútunni á Húsavík eftir glæsilega, fróðlega,  eftirminnilega og skemmtilega ferð.

 

Ég ætla að leyfa mér fyrir hönd þeirra starfsmanna sem tóku þátt í þessari haust-aðventuferð að þakka forsvarsfólki Norðursiglingar fyrir þessa upplifun með ósk um gleðilega hátíð.

Hrólfur Þórhallsson.

 

05 12 11 haustferð 01

Trítlað á Síldarminjasafnið

 

05 12 11 haustferð 02

Örlygur fræðir

 

05 12 11 haustferð 03

Aðalbygging safnsins

 

05 12 11 haustferð 04

Örlygur

 

05 12 11 haustferð 05

Rauðka á veitingastaðinn Hannse Boy

 

05 12 11 haustferð 06

Nilli og Mái fá ekki afgreyðslu og er alveg sama

 

05 12 11 haustferð 07

Starfsmaður Kalda kynnir starfssemi verksmiðjunar. menn hlusta vel

 

05 12 11 haustferð 08

Þarna fer aðalblöndunin fram, Þórunn og Hrólfur spá í þetta

 

05 12 11 haustferð 09

Það er vandi að velja sér kúlu við hæfi þegar leika skal Keilu

 

05 12 11 haustferð 10

Hilla var í sigurliðinu

 

05 12 11 haustferð 11

Nilli og Birna með pro tilþrif

 

05 12 11 haustferð 12

Fylgst með stigagjöf

 

05 12 11 haustferð 13

jólahlaðborð

 

05 12 11 haustferð 14

jólahlaðborð

 

05 12 11 haustferð 16

myndarlegar mæðgur


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld