Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

14. nóvember 2011

Unniš viš Garšar

Skrapp niður í Slipp í dag og þar voru fimm starfsmenn Norðursiglingar að vinna við Garðar.

 

Skrúfan mikið endurbætt og raunar eins og ný var komin á sinn stað og þeir Stebbi og Garðar voru að leggja síðustu hönd á verkið.

 

Guðmundur Skipasmiður og Bjössi Sör voru að vinna við neglingu í skrokk Garðars og er það verk langt komið.

 

Már og Alli voru að pússa og endurnýja sjólínuna á skrokknum.

 

Veður var eins og best verður ákosið miðað við árstíma og það lá vel á köllunum.

 

Ég smellti auðvitað nokkrum myndum þó aðeins hafi verið byrjað að rökkva.

 

 

14 11 11 2011 unnið við Garðar 01

 

14 11 11 2011 unnið við Garðar 02

Garðar og Stebbi með hina skýnandi fallegu skrúfu

 

14 11 11 2011 unnið við Garðar 03

Guðmundur og bjössi Sör vinna að neglingu

 

14 11 11 2011 unnið við Garðar 04

Það liggur vel á Máa

 

14 11 11 2011 unnið við Garðar 05

Og Alla

 

14 11 11 2011 unnið við Garðar 06

Farið að rökkva

 

 

 

 

 

 

 

 


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld