Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

8. nóvember 2011

Haustverk

Nú þegar komið er fram í byrjun nóvember eru haustverkin vel á veg komin hjá starfsmönnum Norðursiglingar.

 

Verið er að ganga frá bátum fyrir veturinn og ditta að ýmsu um borð.

Tíðindamaður vefsíðunar var að skondrast í kringum bátana á dögunum og rakst þar á Stebba Gunn og Garðar sem voru að endurnýja hitakerfi í Náttfara og ditta að vélinni en utaná Náttfara lá skonnortan Hildur og þar voru Alli og Jói að gera Hildi klára til að sigla til Akureyrar þar sem hún mun hafa vetursetu.

 

Haukur var vel innpakkaður uppi í slipp og Garðar var einnig í slipp þar sem verið er að laga skrúfu og skipta út nöglum í skrokk en Garðar mun að því loknu fara aftur á flot og hvíla sig í höfninni.

 

Knörrin og Bjössi Sör lágu við flotbryggjuna og þar verður ditta að ýmsu um borð og er sú vinna þegar hafin þegar þetta er ritað.

 

Nokkrar myndir voru teknar af mönnum og bátum.

 

 

08 11 11 haustverk 01

 

08 11 11 haustverk 02

 

08 11 11 haustverk 03

 

08 11 11 haustverk 04

 

08 11 11 haustverk 05

 

08 11 11 haustverk 06

Garðar og Stebbi

08 11 11 haustverk 07

Nýtt hitakerfi

08 11 11 haustverk 08

Hildur

08 11 11 haustverk 09

Jói og Alli

08 11 11 haustverk 10

 

 

 

 

 

 

 

 


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld