Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

28. september 2011

Seglskśtuleiga įn skipstjóra

Norðursigling bauð í fyrsta sinn í lok ágúst upp á seglskútuleigu án skipstjóra og varð skonnortan Haukur fyrir valinu af 8 manna hóp sem samanstendur af mönnum frá 7 mismunandi löndum. Í hópnum eru 2 skipstjórar en allir meðlimir eru með áralanga reynslu af siglingum. Hefur þessi sami hópur ferðast saman um höf heimsins síðastliðin 10 ár og varð Ísland fyrir valinu á þessu ári. Siglt var um Flatey, Grímsey, Ólafsfjörð og Siglufjörð.

 

Norðursigling afhenti skútuna fullbúna til siglingar og var henni skilað aftur eftir umsaminn leigutíma. Báðar skútur Norðursiglingu, Hildur og Haukur eru mjög vel útbúnar siglingatækjum, sjókortum, GPS og leiðsögubókum með nákvæmum upplýsingum um allt siglingasvæðið. Til að leigja seglskútu án skipstjóra þarf leigutaki að hafa siglingareynslu á skútu af svipaðri stærð og/eða skipstjóraréttindi.

 

Haukur var byggður í Reykjavík árið 1973 og var annar af tveimur mjög sérstökum bátum sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð „Jóns á Ellefu“. Lengst af var báturinn gerður út frá Vestfjörðum en Norðursigling keypti bátinn árið 1996 og breytti honum á svipaðan hátt og Knerrinum og hóf hann hvalaskoðunarferil sinn sumarið 1997. Eftir 5 góðar vertíðir í hvalnum á Húsavík var báturinn settur í slipp á Húsavík þar sem honum var breytt í tveggja mastra seglskip, í stíl við fiskiskonnortu er voru algengar við Norðurland á seinni hluta 19. aldar. Sumarið 2002 sigldi Haukur svo með fólk um Skjálfanda, bæði undir seglum og sem hvalaskoðunarbátur.

 

Haukur siglir inn í Ólafsfjarðarhöfn

Haukur siglir inn í Siglufjarðarhöfn.

 

Haukur í Ólafsfjarðarhöfn

Haukur kominn í höfn á Siglufirði.

 

Haukur undir fullum seglum

Haukur undir fullum seglum.

 

Neðan þilja í Hauki

Aðstaða neðan þilja í Hauki er til fyrirmyndar.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Gamli Baukur
  • Skuld