Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

31. įgśst 2011

Gott gengi ķ Gręnlandsferš

Það er sönn ánægja að segja frá því að fyrsta ferðin á Scoresbysundi, Grænlandi, heppnaðist með eindæmum vel. Bæði farþegar og áhöfn voru stórhrifin af öllu því sem þessi heimsins stærsti fjörður hafði upp á að bjóða, hvað varðar villta náttúru og stórfenglegt landslag. Ute Zimmer var einn fargþega um borð í skútunni Hildi þessa fyrstu viku. Hún orðaði upplifun sína fallega:
"Þakka ykkur öllum innilega fyrir þessa einstöku ferð, þetta ótrúlega ævingtýri, heila viku af nýjum upplifunum og heimsókn á magnaða listasýningu undir berum himni í Scoresbysundi. Við skemmtum okkur frábærlega með "Hildi" og áhöfninni. Eitthvað sem aldrei gleymist..."
 
Reynslumikil áhöfnin og hin glæsilega skúta Hildur, hafa án efa gert þessa upplifun ennþá minnistæðari. Ferðlangarnir fóru í skoðunarferðir á landi og virtu fyrir sér náttúru- og dýralíf Grænlands; framreiddar voru dýrindis máltíðir; siglt var innan um ísjaka og háa fjalltinda og síðast en ekki síst naut hópurinn félagsskapar hvers annars.

Seinni hópurinn er nú að verða hálfnaður með sína vikudvöl og síðustu fréttir frá skipstjóranum herma að hópurinn hafi nú rétt í þessu siglt út úr Ankor Vík og næst á dagskrá sé að varpa ankeri í Hekluhöfn. Þónokkur ís hefur verið á svæðinu sem gerir það að verkum að fara þarf um svæðið af mikilli varkárni. En andrúmsloftið um borð er gott og hópurinn nýtur upplifuninnar!

Eftirfarandi eru myndir sem teknar voru 20. - 27. ágúst, í fyrri vikunni í Grænlandsferðinni 2011.

Grænland 2011_Hildur vid ankeri



Grænland 2011_Ísjaki í wiskey



Grænland 2011_Snaehéri



Grænland 2011_Jaki og farþegar



Grænland 2011_Spil og glens



Grænland 2011_Saudnaut



Grænland 2011_Sjósund á 71°




Grænland 2011_Matartími



Grænland 2011_Kertaljós á dekki



Grænland 2011_Jaki og Hildur



Hildur H.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld