Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

25. įgśst 2011

Kvešja frį skipstjóra į Gręnlandi

Óbyggðahluta fyrri ferðarinnar fer nú senn ad ljúka en Hildur kemur til hafnar í Ittoqqortoormiit í kvöld. Ferðin hefur gengið eins og í góðri ferðasögu. Sjósund á 71.breiddargráðu, lagst upp að 2000 metra háum klettum á skipinu, siglt upp að skriðjöklum og margir stórfenglegir borgarísjakar hafa velt sér fyrir okkur. Í gönguferðum höfum við einbeitt okkur að flóru og fánu landsins og m.a. komist á návígi vid fnæsandi sauðnaut og fjöldann allan af snæhérum.

 

1.9 Grænland 7

Úr Grænlandsferð 2010

 

Ein kvörtun var lögð fram i gærkvöldi, þ.e. að lognið hafi verid það mikið að ekki hafi segl verid tekin upp ennþá.  Úr því var svo bætt í morgun norður af Stevensonhöfða þegar byr fyllti seglin um stund og Hildur geystist áfram á 9,5 mílna hraða!

Ís virðist nú vera minni í mynni Scoresbysunds og því útlit fyrir að áætlanir standist en næstu 36 tímunum verður eytt í þorpinu þar sem gestrisni heimamanna verður notið.

Kv, Heimir, skipstj.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld