Fréttir Noršursiglingar
20. įgśst 2011
Hildur komin til Gręnlands
Skútan Hildur kom á áfangastað sinn, Scoresby Sund, í gærkvöldi. Siglingin yfir að norðaustur strönd Grænlands gekk greiðlega en þegar komið var að suður hluta fjarðarminnis Scoresby Sunds var frekar þétt ísbreiða í vegi skútunnar. Tekið var á það ráð að sigla norður með ísbreiðunni og komust þeir inn í fjörðinn við Tobinhöfða sem er þó nokkuð norðar. 


Á leið þeirra í gegnum í ísbreiðurnar, skaut upp kollinum „heimamaður“. Það reyndist vera einkar forvitið ungt ísbjarnardýr og kom það svo nálægt sem 10-15 metra frá skútunni.
Þetta var ungt dýr og leit út fyrir að vera hungrað, svo eftir að hafa smellt af nokkrum myndum af dýrinu, ákvað skipstjórinn að bakka út úr ísnum og finna nýja leið framhjá dýrinu.

Farþegarnir komu um borð í morgun við flugvöllinn á Constaple Point og fram undan er sjö daga ævintýraferð um fjarðakerfi Scoresby Sunds.

Við munum setja inn nýjar fréttir þegar þær berast af leiðangrinum.


























