Fréttir Noršursiglingar
18. įgśst 2011
Frįbęrt gengi undanfarnar vikur
Undanfarnar vikur hafa verið algjörlega frábærar hvalalega séð. Það hafa verið margir Hnúfubakar í flóanum, hrefnur, blettahnýðingar og við fengum meira að segja steypireyði í heimsókn einn dag. Hnúfubakarnir eru einir bestu sýningarhvalirnir, rólegir, auðnálganlegir, stundum forvitnir og lyfta næstum alltaf sporði þegar þeir kafa. Í morgun fékk Haukur frábæra hnúfubakssýningu og náði hásetinn Felix þessum frábæru myndum.
Á hliðinni alveg við síðu Hauks.
Eftir það kafaði hann undir bátinn og kíkti á kjölinn.
Hnúfubakssporðurinn er ein af táknmyndum hvalaskoðunarinnar og ástæðan fyrir því að margir farþegar koma.


























