Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

18. įgśst 2011

Gömlu eikarbįtarnir uppgeršir.

Upprunalega ástæðan fyrir því að eigendur Norðursiglingar keyptu Knörrinn, fyrsta bát Norðursiglingar, var varðveiting gömlu íslensku eikarbátanna; sem lágu margir og grotnuðu niður í höfnum víðsvegar um Ísland. Eins fallegir og bátarnir eru í dag þá voru flestir þeirra í frekar slæmu ástandi þegar þeir Norðursigling eignaðist þá og þurfti mikla vinnu til að koma þeim í nógu gott ástand fyrir farþegaflutninga. Mörg ár á fiskimiðunum höfðu tekið sinn toll og sumir bátanna höfðu legið ónotaðir svo árum skipti án viðhalds. Endurbygging bátanna tók langan tíma og mikla vinnu en útkoman hefur verið algjörlega frábær og má segja að bátarnir séu eitt ef því besta við Norðursiglingarupplifuna. Vinnan og tíminn hafa margborgað sig.

 

18.08.11 Gamlar myndir 1

Áður en Norðursigling gerði Knörrinn upp hét hann Hrönn.

 

18.08.11 Gamlar myndir 2

Unnið neðan þilja.

 

18.08.11 Gamlar myndir 3

Hvernig sem veðrið var þurfti að vinna í bátunum.

 

18.08.11 Gamlar myndir 4

Haukur fyrir fyrri endurbyggingu.

 

18.08.11 Gamlar myndir 5

Haukur þegar hann var endurbyggður í annað skipti en þá var hann endurbyggður sem tveggja mastra skonnorta.

 

18.08.11 Gamlar myndir 6

Möstrin.

 

18.08.11 Gamlar myndir 7

Náttfari áður en hann var gerður upp.

 

18.08.11 Gamlar myndir 8

Hvalbakurinn þurfti að fara þar sem hann hefði gert skipstjóranum erfitt fyrir að sjá hvað er framundan þegar farþegarnir hefðu raðað sér fram á hann.

 

18.08.11 Gamlar myndir 9

Til að koma í veg fyrir að dekkið leki þarf að tjarga það.

 

Til að sjá hvernig bátarnir líta út í dag er hægt að skoða þá á http://nordursigling.is/batar-og-segl/ eða, það sem betra er, koma til Húsavíkur og skella sér í hvalaskoðun á glæsilegu bátunum okkar, með frábæru áhöfnunum okkar.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld