Fréttir Noršursiglingar
9. įgśst 2011
Undirbśningur fyrir Gręnlandsför hafinn.
Undirbúningur fyrir Grænlandsferð Hildar og er, samkvæmt áhöfninni, á áætlun. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi ferð verður farin á vegum Norðursiglingar með farþega en í fyrra fóru starfsmenn Norðursiglingar í ferð til að athuga aðstæður og undibúa ferðina sem verður farinn nú í ágúst. Hver ferð tekur um 7 daga og verða farnar tvær ferðir frá síðari hluta ágúst fram í byrjun september með um 10 farþega í hvorri ferð. Siglt verður um Scoresby Sund, hrikalegt landslagið skoðað og farið í land á áhugaverðum stöðum.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af Hildi og undirbúningnum.
Hildur í höfn á Húsavík.
Unnið við dekkið.
Endurbætur hafa verið gerðar á vélarrýminu.
Unnið er að endurbætum á siglingartækjum og rafmagni.
Undirbúningur gengur vel og lítið eftir að gera.
Þrátt fyrir svolitla óreiðu lítur Hildur vel út neðan þilja.

Mynd af Hildi úr ferðinni sem farin var síðasta sumar.
Frekari upplýsingar um grænlandsferðina er hægt að nálgast á: http://www.schooners.is/tours/nse-2-greenland/


























