Fréttir Noršursiglingar
22. desember 2010
Jólin nįlgast
Síðustu dagana fyrir jól brá fréttahaukur síðunar sér niður fyrir bakkan og fylgdist með nokkrum starfsmönnum Norðursiglingar að störfum.
Það mátti glöggt merkja á mönnum að jólin voru að nálgast með þeirri afslöppun og góðgæti sem þeim fylgja.
Verið var að klára að breiða yfir Skonnortuna Hildi og eitthvað voru menn að ditta að Gamla Bauk og Rósa kepptist við á skrifstofunni og sagðist eiga von á slatta af barnabörnum í heimsókn um jólin og hlakkaði mikið til þess.
HÞ
Geirfinnur pússar gólfið á Gamla Bauk
Rósa er full tilhlökkunar

og Heimir líka
Geirfinnur og Hreiðar breiða yfir bekki í Garðari
Framendinn á Hildi tilbúinn fyrir yfirbreiðslu
Og afturendinn líka
Oddvar og Alli byrjaðir að breiða yfir Hildi
Og það gengur býsna vel
Þetta er að hafast
Og bara smá eftir og það styttist í Skötuna


























