Fréttir Noršursiglingar
16. desember 2010
Įtak ķ umhverfismįlum Höfšavers
Undanfarið hafa nokkrir vaskir starfsmenn Norðursiglingar verið að taka til hendinni innan húss sem utan í verkstæði fyrirtækisins í Höfðaveri við Höfðaveg.
Fyrr í haust var lokið við að girða lóð Höfðavers af með tréverki og nýlega var skipt um jarðveg við hlið geymslugáms sem er á lóðinni norðanverði. Þar er gert ráð fyrir að hægt sé að geyma eik og annan harðvið sem fyrirtæki sem gerir út eikarbáta þarf að eiga á lager.
Tiltektir þessar eru nú á lokastigi og kominn tími á að birta nokkrar myndir af þessum tilfæringum.
HÞ
Höfðaver í október 2010
Október 2010, hér þarf eitthvað að gera, það er ljóst!
Október 2010
16. desember 2010, búið að teygja á grindverki
Hér var skipt um jarðveg og allt opið!
Það kennir ýmissa grasa í geymslum
Verkleg girðing
Allt að gerast

Oddvar og Hreiðar eru einbeittir

Næg verkefni

Gamli lætur ekki trufla sig við lakkvinnuna


























