Fréttir Noršursiglingar
14. desember 2010
Ķ dag fékk Nįttfari nżja vél
Eins og áður hefur verið minnst á hér á síðunni gengur einn af farþegabátum Norðursiglingar, Náttfari, í endurnýjun lífdaga þennan veturinn.
Í dag var komið að því að hífa um borð nýja vél, en það er 420 hestafla nýleg Scania vél.
Það var Ómar Egilsson starfsmaður hjá fyrirtæki Bjössa Sig, sem mætti galvaskur á vörubíl með öflugum krana.
Og Stebbi Gunn og Alli stjórnuðu verkinu og tóku á móti vélinni um borð.
Allt gekk vel þrátt fyrir smá erfiðleika, sem ekki komu að sök því þarna eru jú vanir og úrræðagóðir menn á ferð.
Eins og alltaf segja myndir nánast allt sem þarf.
HÞ
Undirbúningur í vélarrúmi
Stebbi þarf aðeins að "massa það"
Alli og Stebbi gera "púllara" klára
Svo er híft
Stebbi þarf aðeins að tékka
vélinni skáskotið inn, Ómar er yfirvegaður

hvað er ég að hugsa?
Vélin í gatinu, séð úr vélarrúmi

Og niður mjakast hún
komin á sinn stað, séð aftan frá
Og flott er hún, séð framan frá


























