Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

12. desember 2010

Reykjavķkur - śtibś Noršursiglingar

Í hjarta Reykjavíkur eða í Austurstræti 17 á annari hæð er að finna útibú frá skrifstofu Norðursiglingar.

 

Tíðindamaður vefsíðunar var að skondrast í höfuðborginni í liðinni viku og leit í heimsókn á skrifstofuna og hitti konuna sem þar ræður ríkjum, Birnu Lind Björnsdóttur sölu- og markaðsstjóra Norðursiglingar.

 

Birna mætti til starfa hjá félaginu þann 1. júní 2010 og hefur unnið af krafti í sölu og markaðsmálum síðan.

 

Þar sem yfirgengileg forvitni einkennir mjög tíðindamann síðunnar þá forvitnaðist hann aðeins um manneskjuna á bak við markaðsstjórann.

Birna er fædd á Akureyri en flutti með foreldrum sínum til Lúxenburgar þriggja ára að aldri og sneri ekki heim til Íslands fyrr en 25 árum síðar.

 

Eftir hefðbunda skólagöngu gerðist hún flugfreyja til skamms tíma og það má segja að þá hafi ferðaþjónustubakterían kviknað og Birna hefur unnið margskonar störf í ferðaþjónustu alla tíð.

Fyrir 15 árum sneri hún heim til Íslands og er nú búsett í Kópavogi ásamt fjöldskyldu sinni.

Birna tók diplomu í Ferðamarkaðsfræði frá Menntaskólanum í Kópavogi og Ferðamarkaðsráðgjöf frá Ferðamálaskóla Íslands auk þess að hafa góð tök á einum 6 tungumálum.

 

Annars segist Birna hafa lært mest í skóla lífsins og vinnan á hug hennar allan og að markaðsetja Ísland sé hennar áhugamál auk þess að vera starf.

 

Birna dvaldist langdvölum á Húsavík á liðnu sumri og segir Húsavík vera yndislegan bæ og hún hafi fengið frábærar og hlýjar viðtökur frá öllum.

 

Skrifstofan í Austurstrætinu tekur vel á móti manni og er björt og hlýleg og á Birna heiðurinn af því og kaffið var aldeilis frábært og kom sér vel því það var hálfgerður heimsskautakuldi í höfuðborginni þennan dag.

Og að sjálfsögðu smelltum við nokkrum myndum.

 

12 12 2010 frett Birna 01

 

12 12 2010 frett Birna 02

 

12 12 2010 frett Birna 03

 

12 12 2010 frett Birna 04

 

12 12 2010 frett Birna 05

 

 


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld