Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

11. desember 2010

Ķslensku-Master į Vesturgötunni

Tíðindasnati vefsíðunnar var að vísitera höfuðborgina í vikunni og fannst alveg tilvalið að líta inn hjá Þórdísi Jóhannesdóttur starfsmanni Norðursiglingar til margra ára.

 

Þórdís er að ljúka Master í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands og hefur í hyggju að klára ritgerðina sína á vordögum.

 

Þórdís hefur starfað við leiðsögn hjá Norðursiglingu til margra ára og seinustu ár hefur hún einnig tekið að sér þjálfun leiðsögumanna, séð um blogg á vefsíðu, unnið skrifstofustörf, verið formaður skemmtinefndar og eflaust erum við að gleyma einhverju en sumarið 2010 haslaði hún sér völl í leiklistinni með öðru, og tók að sér hlutverk í gleðileiknum „ Let´s Talk Local“ sem sýnt var daglega í skipasmíðastöðinni.

 

Tíðindamaður tók hús á Þódísi þar sem hún leigir notalega íbúð ásamt vinkonu sinni Tinnu Þórarinsdóttur frá Húsavík, á Vesturgötu 50 í hinum forna Vesturbæ Reykjavíkur.

En hér koma nokkrar myndir af hnátunni við leik og störf undanfarin ár.

 

 

 

11 12 2010 ?žordis 02

Hvalaskoðun

 

11 12 2010 ?žordis 03

Með Hreiðari vini sínum á góðri stund

 

11 12 2010 ?žordis 04

Gróður jarðar

 

11 12 2010 ?žordis 05

Selskapsdaman

 

11 12 2010 ?žordis 06

Þórdís, Þorbjörg og Remi, Happy hour í Náttfara

 

11 12 2010 ?žordis 07

Party í Melstað. Þórdís og Britta

 

11 12 2010 ?žordis 08

Á Rauðanúp ásamt Siggu og Nils


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld