Fréttir Noršursiglingar
23. nóvember 2010
Nįttfari ķ góšum gķr !
Í gærdag var gírinn hífður upp úr Náttfara og settur inná verkstæði til yfirferðar.
Gír þessi er búinn að þjóna sýnu hlutverki síðan báturinn var sjósettur árið 1965 eða í 45 ár og mun gera það áfram um ókomna tíð, því það sér varla neitt slit á honum en gírinn var skoðaður og yfirfarin í dag.
Þegar við litum inná verkstæði í dag voru einir þrír vélstjórar að grandskoða gírinn og við fengum að vita að þetta væri reyndar ekkert óvenjulegt, yfirleitt dygðu gírar vel þó aðalvélar sem eru jú tengdar við hann, komi og fari.
En hér koma nokkrar myndir af þessum 45 ára gamla búnaði.
HÞ
Hörður, Jósep og Stefán við gömlu Cummins vélina úr Náttfara
Og nú er gírinn skoðaður
Hinn hálf fimmtugi gír
Þetta lítur allt vel út


























