Fréttir Noršursiglingar
27. įgśst 2010
Heim frį Gręnlandi
Skonnortan Hildur er væntanleg til Húsavíkur um hádegi í dag. Að baki er stórkostleg ævintýraferð sem mun seint líða leiðangursmönnum úr minni.
Nyrst sigldi Hildur norður fyrir 71. breiddargráðu innan hins stórkostlega fjarðakerfis Scoresbysunds. Síðasti viðkomustaður Hildar var útvörður íslenskrar landhelgi, Kolbeinsey en hún var skoðuð lítillega í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá Heimi skipstjóra.

Mikið af skemmtilegu myndefni er í farteskinu og verður því gert betri skil hið fyrsta hér á vefnum.


























