Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

23. įgśst 2010

Fréttir frį fleiri įhafnarmešlimum Hildar

Við höfum nú fengið meiri fréttir af Grænlandsför Hildar. Gísli, einn áhafnarmeðlima, sendi okkur myndir og smá orðsendingu um hvernig leiðangurinn gengur. Síðan við heyrðum frá þeim seinast eru þau komin til Ittoqqortoormiit þar sem þau, eftir að hafa fengið leiðbeiningar frá innfæddum, settu niður akkeri. Remy, einn áhafnarmeðlima, hafði verið í Grænlandi áður og hjálpaði til við túlkun. Um kvöldið elduðu þau sauðnaut sem innfæddir gáfu þeim og borðuðu áhafnarmeðlimir af hjartans list þar sem sumir höfðu verið of sjóveikir á sjónum til að borða mikið. Eftir kvöldmat var stefnan tekin á bar einn þar í bæ sem er aðeins opinn einn dag í mánuði; útborgunardag. Þau fóru þó snemma í rúmið þar sem skipstjórinn hafði ákveðið að lagt yrði af stað klukkan 5 morguninn eftir. Þau sigldu síðan í hífandi roki norður fjörðinn sem flugvöllurinn stendur við að Constable Point. Þar sóttu þau 4 áhafnarmeðlimi áður en þau héldu áfram í það sem Gísli kallar mest spennandi hluta ferðarinnar og við bíðum mjög spennt eftir meiri fréttum.

 

23.08 01 jakavaktin

Ísjakavaktin.

 

23.08 02 land

Veðrið farið að skána og farið að sjást til lands.

 

23.08 03 segl

Alli og Remy hífa upp seglin.

 

23.08 04 Ittoqqortoormiit

Hildur við Ittoqqortoormiit.

 

23.08 05 zodiac

Áhafnarmeðlimir ferjaðir í land.

 

23.08 06 Hildur

Hildur á lygnum sjó.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld