Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

21. įgśst 2010

Gręnlandsför Hildar gengur vel

Við vorum að fá fréttir frá Heimi skipstjóra á Hildi um Grænlandsförina. Eftir innan við tveggja sólarhringa siglingu er Hildur komin í Scoresbysund á austurströnd Grænlands. Scoresbysund heitir á grænlensku Kangertittivaq og er lengsti fjörður í heimi, en hann teygir sig 350 km inn frá Grænlandshafi. Á leiðinni og í Scoresbysundi hefur áhöfnin komið auga á ísjaka, hvali og öldur af öllum stærðum og gerðum og eru sumir áhafnarmeðlimir sjóveikir eftir frekar slæman öldugang. Sigling gekk engu að síður vel, oft góður byr í seglin þó að  á miðju Grænlandssundi hafi gert hægviðri sem þurfti að treysta á vélaraflið eitt til að komast í gegnum og í nótt fram á morgun var norðanátt sem tafði för.

Þegar ahöfn Hildar kom inn í sunnanvert Scoresbysund sigldu hun að tveimur glæsilegum borgarísjökum og drógu upp seglin og sigla nú í átt að Ittoqqortoormiit sem er ein af nyrstu byggðum á austurströnd Grænlands. Þetta er lítið þorp með innan við 500 íbúa á svæði sem er þekkt fyrir dýralíf, meðal annars ísbirni, seli og sauðnaut. Byggðin hófst árið 1925 þegar pólkönnuðurinn Ejnar Mikkelsen settist þar að ásamt 80 inúítum og lifði byggðin fyrst á gjöfulum veiðum á svæðinu. Nú er þjónusta við ferðamenn stækkandi starfsgrein á svæðinu þrátt fyrir að aðeins sé hægt að komast þangað með bát eða þyrlu. Vonandi fáum við fljótlega fleiri fréttir af ferðalagi Hildar en þetta voru þær fréttir sem við fengum í dag.

 

Hildur

Hildur kemur til Húsavíkur fyrr í sumar.

 

 AusturGrænland

Austurströnd Grænlands. Scoresbysund er neðsti fjörðurinn á myndinni.

 

Ísjakar

Ísjakar við Grænland.

 

Ittoqqortoormiit

Ittoqqortoormiit. 

 

Sauðnaut

Sauðnaut í varnarstöðu.

 

Allar myndir nema myndin af Hildi og myndin af Ittoqqortoormiit, sem var tekin af Hannes Grobe, notuð undir Creative Commons CC-BY-SA-2.5 og aðeins minnkuð til að passa á síðuna, tilheyra almenningi.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld