Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

19. įgśst 2010

Įrshįtķš Noršursiglingar

Árshátíð Norðursiglingar var haldin kvöldið 17. Ágúst. Árshátíðin hófst að vanda með óvissuferð þar sem starfsmönnum var smalað upp í rútu og í þetta sinn var keyrt í austurátt. Eftir stutta ferð var komið í Sultir í Kelduhverfi þar sem árshátíðin fór fram í gamalli hlöðu. Þegar þangað var komið hófust sumir handa við að grilla kjötið og koma drykkjum á borðið á meðan aðrir fengu sér göngutúr til að virða fyrir sér svæðið. Síðan var sest að borðum og dýrindis matur borðaður. Auk þess voru skemmtiatriði sem vöktu mikla lukku. Þegar skemmtiatriðunum og matnum lauk var hlöðuball með hljómsveitinn S.O.S. fram á nótt. Þegar ballinu lauk keyrði rútan svo með fólkið aftur heim til Húsavíkur.

 

Hörður

Hörður stappar stálinu í starfsmennina.

 

Sultir

Komin í Sultir.

 

fólk

Fólk farið að koma sér fyrir.

 

SOS

S.O.S. mæta á svæðið.

 

Grill

Eldamennskan hafin.

 

Matur

Maturinn kominn á borðið og ekki eftir neinu að bíða.

 

Ísak Alli og Halla

Halla að útskýra leik fyrir Alla og Ísak orðinn stressaður.

 

Hlátur

Leikurinn vakti mikla lukku.

 

Sammi og Ísak

Ísak með örlítið marið egó en að öðru leyti í góðu skapi.

 

bibbi Heimir og Aggi

Bibbi, Heimir og Aggi taka undir í fjöldasöngnum.

 

Rúta

Sumir þreyttari en aðrir á leiðinni til baka.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld