Fréttir Noršursiglingar
16. įgśst 2010
Frįbęr rigningarferš ķ Flatey
Eins og fram kemur á vefsíðu okkar, www.whalewatchinghusavik.is, eru í boði ýmiss konar sérferðir eftir pöntun. Ein slík er ferð út í Flatey í Skjálfanda, fagurrar eyju sem, eins og nafnið gefur til kynna, rís ekki hátt frá sjávarmáli, ekki nema eina 22 metra þar sem hæst er. Í gær fórum við Hreiðar skipstjóri ásamt Teresu aukagæd með hóp fólks þangað út. Sjóferðin tekur yfirleitt um einn og hálfan til tvo tíma, en ferðin þangað teygðist eilítið þar sem ákveðið var að sigla nær Víknafjöllum, frekar en beint yfir flóann.
Veðrið var milt og gott, en töluvert ringdi. Þá koma regnkápurnar um borð að góðum notum, og enginn lét veðrið angra sig, þrátt fyrir stanslaust úrhelli nánast alla ferðina.
Farið var í göngutúr um eyjuna og umhverfið skoðað. Fagurt umhverfið í bland við gömul hús í góðu ástandi og stutta sjóleiðina í landið fyrir vestan, fallegan Flateyjardalinn og fjöllin í kring, gera Flatey að stað sem vel hægt er að hugsa sér rólyndisdvöl á til lengri tíma. Þó hefur ekki verið búið í eyjunni síðan 1967, en húsunum hefur verið haldið við og þau mörg notuð sem sumarbústaðir.
Í Flatey er einnig fjölbreytt fuglalíf, verpa þar um 30 tegundir af þeim rúmlega 70 sem finnast á landinu öllu. Margar ástæður má finna til að fara til Flateyjar, og ef þú hefur áhuga er lítið því til fyrirstöðu að hafa samband og athuga hvort við getum ekki skipulagt ferð með þér. Meðal annars er mögulegt að grilla þegar þangað er komið og jafnvel taka hvalaskoðun eða sjóstangarveiði á leið út í eyju!

Húsin í Flatey.

Einn af vegunum í Flatey.

Kirkjan.

Kirkjugarðshliðið.
VP, leiðsögumaður


























