Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

12. jślķ 2010

Hildur į heimleiš!

Hildur hefur lagt frá bryggju í Danmörku þar sem hún hefur verið síðastliðna 10 mánuði, eða síðan í september á seinasta ári, er unnið var að því að gera hana upp sem skonnortu. Meginþorri vinnunnar fór fram í Egernsund, og var hún þar gerð sjófær í sínu nýja líki. Í maí var svo siglt hina stuttu leið til Flensborgar í Þýskalandi, þar sem siglingingahátíðin Rumregatta er haldin ár hvert, og var Hildur þar fyrst íslenskra skonnorta til að vera viðstödd. Það var þó án segla, þar eð töf hafði orðið á sendingunni á þeim. Að öðru leyti var Hildur nánast tilbúin, og stuttu eftir að seglin bárust var haldið í prufusiglingu sem talið var að gengið hefði mjög vel.

Því hófst siglingin meðfram austurströnd Danmerkur og heim á leið seinasta föstudag, þann 9. júlí. Í þessum skrifuðu orðum er því Hildur á leiðinni, og ef allt gengur sem skyldi er búist við að hún komi einhvern tímann í kringum þessa helgi. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af Hildi frá upphafi ferðar og á leiðinni upp með Danmörku.

 

Nokkur seglanna uppi

 

Hildi siglt út og nokkur seglanna komin upp.

 

Fleiri segl bætast við.

 

Smám saman fjölgar þeim.

 

Séð aftan frá

 

Séð aftan frá, augljóst að vindurinn togar í.

 

Öll segl uppi

 

Öll segl komin upp.

 

Nokkrir úr áhöfninni

 

Nokkrir úr áhöfninni.  Auðvelt að þekkja Rémy sem fremstur stendur á vígalegu hárinu og appelsínugulum stakknum. Framkvæmdastjórann sjálfan, Hörð, má sjá ef aftar er litið, með símann uppi.

 

Kong Christian X's Bro

 

Farið framhjá Kong Christian X's Bro í Sønderborg.

 

Horft á sólsetrið

 

Hörður horfir á sólsetrið af dekkinu á Hildi.

 

Hildur á góðri siglingu

 

Siglt á 9 hnúta ferð með öll segl uppi.

 

Vindur að baki

 

Með vindinn að baki og breitt úr seglum til beggja hliða.

 

Hildur fyrir breytingar

 

Það er alveg hreint ótrúlegt að sjá muninn eftir alla þessa vinnu, en hér er sem sagt Hildur í sínu upprunalega formi, myndin tekin á leið út úr höfninni daginn sem lagt var af stað til Danmerkur!

 

VP


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld