Fréttir Noršursiglingar
8. jślķ 2010
Žjįlfun og ęfingar seinustu daga
Nýverið hafa starfsmenn okkar í afgreiðslunni ásamt leiðsögumönnum fengið tækifæri til að bæta sig enn frekar í starfi. Nú á dögunum var haldið framsögunámskeið í samvinnu við Margréti og Odd Bjarna, sem við flest þekkjum úr Let's Talk Local sem hefur verið í sýningu á Gamla Bauk undanfarið. Starfsfólkinu var skipt í tvennt og fékk hvor hópur sína kvöldstundina til talæfinga, gagnrýni og heilræða varðandi þjónustu, framkomu og talanda frá þessum lærða leikara og leikstjóra.
Í gær var of slæmt veður til að halda út í hvalaskoðun og var því dagurinn nýttur til björgunaræfinga meðal skipstjóra, leiðsögumanna og háseta. Farið var vandlega yfir öryggisatriði á Bjössa Sör og Knerrinum annars vegar fyrir þá áhafnarmeðlimi sem venjulega fara út á þeim, og Hauk hins vegar fyrir þá sem sigla í NS-2 ferðunum okkar. Einnig voru margs konar neyðartilvik sem komið geta upp, ásamt réttum viðbrögðum við þeim, rædd. Að lokum var öllum smalað saman á Bjössa Sör og haldið var út á flóa. Leiðsögumönnum var öllum gefið tækifæri til að stýra bátnum, reynsla sem gæti m.a. komið sér vel í neyð. Því næst var „Maður fyrir borð“ æft, eitthvað sem er einmitt hvað líklegast að komi fyrir í veðuraðstæðum sem slíkum, en hefur þó aldrei gerst í sögu Norðursiglingar.
Hér eru nokkrar myndir frá æfingunni í gær.
Hrólfur skipstjóri fer yfir staðsetningu neyðarbúnaðar ásamt fleiru.
Skipstjóri sýnir hásetum akkeri í Bjössa Sör.
Leiðsögumenn og hásetar ásamt skipstjóra skoða björgunarbát í Bjössa Sör.
Halla Marín prófar að stýra Bjössa Sör undir handleiðslu skipstjórans.
Allir orðnir vel blautir í rigningunni og gusugangingum eftir æfinguna.
Starfsfólkið hefur því þessa seinustu daga fengið gott tækifæri til að skerpa á eða tileinka sér ýmis góð vinnubrögð sem mikilvægt er að ala með sér í starfi sem þessu. Því miður gefa núverandi veðuraðstæður ekki besta tækifærið til að nýta þau í verki, en við mætum einfaldlega tvíefld til starfa þegar brælan og vonda veðrið er afstaðið!
VP



























