Fréttir Noršursiglingar
7. jślķ 2010
Lķfiš į Gamla Bauk
Gamli Baukur iðar af lífi þessa dagana, enda sumarið annasamasti tími ársins.
Margt er um að vera s.s. daglegar leiksýningar á verkinu Let‘s Talk Local í Skipasmíðastöðinni sem er gamansýning um þá félaga Garðar Svafarsson og Náttfara og þegar þeir stigu fyrstir manna á land hér við Húsavík. Á miðvikudagskvöldum er Barsvar sem notið hefur mikilla vinsælda undanfarin ár og er sífellt stækkandi hópurinn af fólki sem að mætir til leiks í viku hverri.
„Skipó“ er góður staður til tónleikahalds og kemur fjöldinn allur af tónlistarmönnum hingað til að skemmta og það sem er framundan í þeim efnum eru tónleikar með erlendu hljómsveitinni The Fancy Toys ásamt söngkonunni Ragnheiði Gröndal og Pétri Guðmundssyni gítarleikara á morgun, 8. júlí klukkan 21 og kostar litlar 1500 krónur inn.
Næstkomandi laugardagskvöld, 10. júlí, er svo ball með stuðbandinu Draugabönunum.
Verið velkomin á Gamla Bauk!




























