Fréttir Noršursiglingar
29. jśnķ 2010
Nż įętlun ķ byrjun jślķ
Nú nálgast júlí óðfluga og frá og með 1. júlí tekur ný áætlun brottfara gildi. Þá verða í heild 11 brottfarir á degi hverjum; 9 NS1-Hvalaskoðun og 2 NS2-Hvalir, lundi og segl. Fyrsta brottför dags verður 8:30 að morgni og síðasta 20:15 kvöld hvert. Júlí er vinsælasti mánuðurinn í hvalaskoðuninni hjá okkur og við vonum að árið í ár verði jafn líflegt og í fyrra!
Hins vegar féll stærsti báturinn okkar, Náttfari, úr notkun nú í júní sökum ófyrirséðrar vélarbilunar og lítur út fyrir að hann komist ekki á sjó á ný þetta sumarið. Jafnvel þótt við eigum von á tveimur nýjum bátum mun bilun Náttfara vafalaust raska áætlun júlímánaðar dag frá degi. Vinsamlegast hafið samband við miðasöluna okkar til að heyra nýjustu breytingar á áætlun.



























