Fréttir Noršursiglingar
28. jśnķ 2010
Hildur ķ prufusiglingu
Lítið vantar í að Hildur verði fullklár. Farið var á henni í siglingu með nokkrum gestum og þar á meðal vönu siglingafólki. Talið var að vel hefði gengið að sigla henni, bæði í hægum vindi og eilítið knappari. Á allra næstu dögum verður því farið að sigla heim á leið, og verður þá lokið við það allra seinasta við bryggju á Húsavík.
Líklegast verður þá hægt að taka hana í notkun stuttu upp úr því, en að sjálfsögðu munum við birta fleiri fréttir af Hildi þegar þær berast, og endanleg dagsetning er ekki örugg sem stendur. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr siglingunni og af Hildi sjálfri frá seinustu dögum.
Hildur við bryggju með nokkur seglanna uppi.
Unnið um borð í Hildi. Reykingarnar verða að sjálfsögðu ekki leyfðar í ferðunum. ;)
Unnið aðeins á dekkinu. Björgunarbátur kominn um borð.
Greinilega gott veður í ferðinni, nokkrir gestanna virðast njóta sólarinnar.
Stafnlíkanið á óvanalegum stað, venjulega er það að finna undir bugspjótinu frekar en ofan á því.
Hildur siglir undir fullum seglum.
VP



























