Fréttir Noršursiglingar
17. jśnķ 2010
Skonnortan Hildur tķnir į sig spjarirnar
Eins og fram hefur komið hafa tafir orðið á afhendingu segla fyrir Skonnortuna Hildi og að auki var vesen með skrúfubúnaðinn en nú sér fyrir endann á þessu öllu og fljótlega siglir hún af stað seglum þöndum áleiðis til Húsavíkur.
Okkar menn, Hörður Sigurbjarnarson og Rémy Tokouda eru á staðnum og vinna við að koma upp reiðanum en seglin eru nú flest komin til Egernsund frá Lyngør þar sem þau voru saumuð. Þarna er um að ræða 250 fermetra af fallegum hvítum seglum sem munu fara vel við snævi þakin Kinnarfjöllin í framtíðinni.
Eftirfarandi myndir hafa verið teknar á undanförnum dögum og má sjá verkið taka á sig betri mynd með degi hverjum.
HH

Ýmis tól og tæki eru nauðsynleg til verksins eins og sjá má

Séð að ofan

Rémy lætur ekki rigninguna á sig fá

Hörður grillar fyrir svanga skútumenn

Hluti seglanna kominn upp

Styttist í að Hildur geti siglt af stað


























