Fréttir Noršursiglingar
15. jśnķ 2010
Garšar sjósettur
Stórum áfanga var náð í slippnum í dag þegar mastur var sett upp í Garðari og í framhaldi af því var báturinn sjósettur. Sjósetning gekk vonum framar og Garðari var siglt einn hring um höfnina en svo lagðist hann að bryggju þar sem vinna í bátnum heldur áfram við bryggju þar til hann verður tilbúinn í hvalaskoðunina.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við sjósetningu.

Mastrið gert klárt

Stefán Jón hífður upp í mastrið

Mastrið komið á sinn stað

Sigga fleygir kampavíninu að sjómannasið

Ýtt úr vör

Kominn af stað

Sjósetningu lokið og allt gekk að óskum

Náttfari og Garðar sigla saman í fyrsta sinn en væntanlega ekki hið síðasta



























