Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

7. jśnķ 2010

Frįbęrir dagar į Skjįlfanda

Undanfarna daga hefur fáum leiðst úti á Skjálfandaflóa. Veðrið hefur leikið við okkur, stanslaust sólskin ef frá er talinn laugardagurinn þegar dimmdi með þoku. Lífríkið hefur verið með besta móti, mikið fuglalíf og fjöldi hvala að sama skapi að aukast.

Fyrstu steypireyðar sumarsins sáust óvenju snemma, þann 27. maí en þær héldu skjótt aftur norður á bóginn. Nokkrum dögum síðar eða þann 3. júní sáust steypireyðar aftur og hafa sést reglulega eftir það. Einnig hafa hnúfubakar, hrefnur, hnísur og höfrungar sést á hverjum degi og því hefur í sumum ferðum verið möguleiki að sjá 3-4 tegundir í einni ferð.

 

Meðfylgjandi eru ótrúlegar myndir af steypireyðum frá því á föstudagsmorgun sem farþegi frá Hollandi, Ruud van Beusekom, tók og gaf okkur góðfúslegt leyfi til að birta hér.

 

ÞJ

 

Tvær steypireyðar

Tvær steypireyðar, önnur á leið í kaf

© Ruud van Beusekom

 

Steypireyður lyftir sporði

Það er ekki  mjög algengt að steypireyður lyftir sporði en mögnuð sjón

© Ruud van Beusekom

 

Steypireyður í nærmynd

Steypireyður í nærmynd

© Ruud van Beusekom


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld