Fréttir Noršursiglingar
26. maķ 2010
Hildur til Flensborgar
Skonnortan Hildur er orðin haffær þó engin séu seglin komin upp en töf hefur orðið á afhendingu þeirra frá Englandi og Noregi.
Margir góðir karlar hafa unnið í allan vetur í Hildi en hún hefur verið í slipp í Egernsund í Danmörku frá því í fyrrahaust.
Föstudaginn 14. maí síðastliðinn sigldi Hildur frá Danmörku til Flensborgar í Þýskalandi eftir að nokkrir góðir Norðursiglingarmenn, þeir Hörður, Heimir, Haukur, Alli og Óli, höfðu unnið harðri hendi við að gera skipið klárt fyrir kynningu þar í borg.
Með í för var stórvinur Norðursiglingar og eigandi skútunnar Dagmar Aaen, þýski ævintýramaðurinn Arved Fuchs.
Árlega er haldin siglingahátíð í Flensborg, Rumregatta, þar sem hundruðir skonnorta koma saman og er hápunkturinn siglingakeppni þar sem siglt er á Flensborgarfirði. Eins og áður hefur komið fram eru engin segl komin upp á Hildi og var því Norðursiglingarmönnum boðið að sigla með öðrum skútum, s.s. Carmelan frá Flensborg og Activ, þriggja masta skonnortu sem kom til Húsavíkur sumarið 2008 .
Næsta sumar verður haldin siglingahátíð hér á Húsavík og ber hún yfirskriftina Sail Húsavík 2011. Notuðu menn tækifærið í Flensborg og kynntu hátíðina fyrir gestum og gangandi, meðal annars nokkrum Íslendingum sem að römbuðu á íslenska flaggið og kíktu í heimsókn um borð í Hildi, en hún er fyrsta íslenska skútan sem kemur á Rumregatta í Flensborg.
Eins komu í heimsókn tveir góðir erlendir starfsmenn Norðursiglingar, þeir Remý frá Nýju-Kaledoníu og Martin frá Þýskalandi, en þeir félagar hafa verið staddir í Grænlandi í vetur sem áhafnarmeðlimir á þýsku skútunni Dagmar Aaen. Nú er Remý staddur í Danmörku og undirbýr Hildi fyrir siglinguna yfir hafið aftur heim til Íslands í júní.

Alli að bardúsa upp í mastri.

Hildur í Egernsund.

Kaffipása.

Fallegt í kvöldsólinni í Danmörku.

Unnið hörðum höndum fram á kvöld.

Fyrsta fallbyssuskotinu skotið til heiðurs Hildar.

Hildur frá Húsavík.

Siglt frá Egernsund til Flensborgar.

Alli glaðbeittur við komuna til Flensborgar.

Kvöldmatur snæddur um borð í Hildi.

Sail Húsavík 2011 var kynnt.

Hildur við bryggju í Flensborg.

Siglt á Flensborgarfirði.

Regatta.

Alli um borð í Carmelan.


























