Fréttir Noršursiglingar
1. maķ 2010
Sįlubót Grķmseyinga
KL 09:00 þ. 1. maí lagði einn af bátum Norðursiglingar, Náttfari úr höfn og stefnan sett á Grímsey.
Það var hið ramm Þingeyska söngfélag Sálubót sem leigði bátinn með áhöfn, til að fara og skemmta Grímseyingum og var ætlunin að gista eina nótt í Grímsey, þetta voru lokatónleikar í röð vortónleika sem kórinn hefur boðið til í Þingeyjarsýslum og Akureyri.
Ferðin gekk vel og allir 60 farþegarnir virtust njóta sín vel þrátt fyrir vorkuldann sem hefur verið óvenjuþrálátur þetta vorið.
Útleiðin gekk vel og var veður og sjólag stillt, en síðustu tvo tímana var þó talsverður Norð-vestan vindur sem framkallaði dálítið pus og einnig velting svo slá varð af hraða bátsins, en um tvöleitið náðum við í höfn í Grímsey.
Eyjaskeggar komu með lyftara og Dráttarvél með kerru og fiskikörum ætluðum undir farangur ferðalangana, og afferming gekk undravel enda vanir ferðamenn hér á ferð.
Fyrst voru allir drifnir upp í Samkomuhús þar sem kvennfélagskonur biðu með heita súpu, sem gerð var góð skil, svo var farið í gönguferð.
Kl 17:00 byrjuðu svo tónleikarnir, sem voru stórgóðir og var ekki að heyra að sævolkið hefði haft nein áhrif á barka kórfélaga.
Um áttaleytið var síðan slegið upp veislu í samkomuhúsinu með mat, skemmtiatriðum og síðan balli, allir skemmtu sér konunglega.
Stundvíslega kl 10 morguninn eftir var svo morgunmatur og um 12 leytið var lagt úr höfn, siglt var hring um eyjuna og hin rómuðu fuglabjörg Grímseyinga könnuð, einnig var stoppað hjá grásleppuköllum sem voru í óða önn að innbyrða þara í bland við Grásleppu og höfu þeir á orði að þeir vildu gjarnan fá eins og hálfan kór til að hjálpa til við netinn, en þeirri beiðni var hafnað og stefnan sett á Húsavík. Heimferðin gekk vel, veður og sjólag var stillt en frekar var hann nú kaldur.
Heimavið Húsavík rákumst við á Hrefnu sem við stoppuðum hjá skamma stund og skömmu seinna var komið í höfn á Húsavík, og var það almenn skoðun þessara vösku Útrásarvíkinga að ferðin hefði heppnast í alla staði vel.
Áhöfn Náttfara í þessari ferð voru Hrólfur Þórhallsson Skipstjóri, Júlíus Jónasson Vélstjóri og Ármann Gunnlaugsson háseti.
Við í áhöfninni viljum þakka þeim í Söngfélaginu Sálubót fyrir frábæra ferð og skemmtilegan félagsskap.
Fyrirtækið Norðursigling sendir þeim í Sálubót bestu kveðjur með kærri þökk fyrir viðskiptin.
Hrólfur Þórhallsson Skipstjóri
Við bryggju í Grímsey
Morgunmatur í Samkomuhúsinu
Ferðalangar stilltu sér upp fyrir myndatöku fyrir brottför
En gátu ekki stillt sig um að taka eins og eitt lag það er Jaan Alavere sem stjórnar
Fuglabjörg Grímseyinga
Allir veldúðaðir á heimleiðinni


























