Fréttir Noršursiglingar
22. aprķl 2010
Fallegur dagur
Farið var í fjórðu hvalaskoðunarferðina á Bjössa Sör kl 13 30 á Fimmtudag, veður var stillt og sólin skein en frekar var hann nú svalur.
Flóinn skartaði sýnu fegursta í blíðunni og við héldum af stað út á flóa með fjóra veldúðaða farþega, sem nutu ferðarinnar í botn þó engan sæju þau Hvalinn að þessu sinni.
Nóg var að Lundanum og tölvert var einnig af Langvíu og Álku á flóanum,
við stoppuðm hjá Lundey í bakaleið og þar gat að líta breiðurnar af Lunda svo þúsundum skipti.
Lundinn gefur ekki frá sér hljóð þegar hann situr á sjónum svo það er býsna sérkennilegt að vera innanum þúsundir fugla og þar ríkir þögnin ein.
HÞ
Leiðsögumaðurinn Nils ásamt farþegunum fjórum
Við Lundey


























