Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

23. aprķl 2010

Slegiš ķ Garšar

Verið er að endurnýja allt kjalfatt ofan sjólínu á Garðari. Þ.e það er verið að slá íann eins og Slipparar segja, en fyrir þá sem ekki skilja slipparamál þá er verið að hreinsa burt alla ull sem sett er á milli planka á tréskipum, til að gera þau þéttari.

Og síðan er ný ull sleginn eða troðið inn í staðinn, þetta er gert með þartilgerðum ísláttarverkfærum og stálmeitlum, þó eflaust hafi meitlarnir verið úr tré hér áður fyrr.

Þetta er gert samkvæmt kúnstarinnar reglum og eru nákvæm vísindi, það er Guðmundur skipasmiður frá Dalvík sem hefur umsjón með þessu, eins og raunar flestu öðru sem heyrir undir skipasmið í uppgerðinni á Farþegaskipinu Garðari sem stendur uppi í Húsavíkurslipp.

Við vorum á ferðinni á dögunum um borð í Garðari  og rákumst þá reyndar á annan völundarsmið inní brú, þar var á ferðinni Stefán Traustason Trésmíðameistari frá Akureyri, hann var þar á hnjánum við að smíða gólf í brúna.

Nú við smelltum auðvitað myndum af ísláttargenginu og gólfsmiðnum en af honum náðist ekki andlitsmynd í þetta skiptið þar sem maðurinn var mjög svo önnum kafinn við gólfsmíðina og ekki vert að vera að ónáða hann fyrir fyrirsætustörf.

 

 

 frétt slegið í garðar 23 04 10

Guðmundur skipasmiður að slá í 

 

Og Jónas líka 

 

Siggi og Geirfinnur eru á stjórnborða 

 

Baksvipurinn á Sigga Hákonar 

 

Stefán Traustason mundar skrúfvélina 

 

Hið nýja brúargólf


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld