Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

14. aprķl 2010

Fyrsti Hvalaskošunartśr įrsins!

 

Í dag kl 1330 var haldið af stað í fyrsta hvalaskoðunartúr ársins hjá Norðursiglingu.

Farið var á Bjössa Sör og það voru Hrólfur Þórhallsson skipstjóri og Nils Bjartur Hailer sem riðu á vaðið ásamt 10 velbúnum farþegur af ýmsum þjóðernum.

 

Eftir um 20 mín siglingu sást í Hnúfubak og reyndist hann vera mjög viðmótsþýður og sýndi sig vel, gerði einnig nokkur sporðaköst, farþegum til mikillar ánægju. Eftir þá sýningu var stefnan tekin á Lundey, þar sem þúsundir Lunda voru á sveimi og voru þeim gerð góð skil. Því næst var leitað að fleiri hvölum en það bar ekki árangur að þessu sinni og eftir um þriggja tíma túr var haldið í höfn á ný og það var á farþegum að heyra að þetta hefði verið ánæjuleg upplifun.

 

Einhverjar myndir voru teknar og hér kemur smá sýnishorn af því.

 

Nils Bjartur lítur yfir sviðið áður en lagt er íann. 

 

Hnúfubakur framundan! 

 

Og hann stingur sér! 

 

Í höfn á ný. 

 

 


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld