Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

13. aprķl 2010

Hvalarannsóknir

 

 

Eftir hádegið í dag fór einn af bátum Norðursiglingar, Náttfari, út á Skjálfandaflóa í þeim tilgangi að nálgast og færa í land tvö lítil hlustunardufl sem hafrannsóknardeild Háskóla Íslands á Húsavík hefur haft staðsett á hafsbotni undanfarna mánuði í því skyni að hljóðrita öll hljóð sem nálægt þeim koma, og þarna er aðallega verið að vita hvort og hvaða hljóð Hvalir gefa frá sér.

 

Annað duflið var staðsett vestan í flóanum uppundir landi skammt norðan Fiskiskers, en þar er alþekkt Hvalaslóð og hitt duflið var svo að austanverðu eða skammt undan Héðinshöfða.

 

Aðferðin við að ná þessum duflum upp er hátæknileg þ.e það er sent merki niður í tölvukupp í duflinu sem kemur á sambandi upp í bát, svo þegar fjarlægð er hæfileg er send skipun um að setja af stað efnaferli sem byrjar að brenna sundur vírinn sem tengir duflið við þá þingíngu sem notuð er til að halda því á botninum, þetta ferli getur tekið allt upp í hálftíma og jafnvel meira ef fyrsta brennsla heppnast ekki, en þá er byrjað að nýju alveg þangað til duflið skýst upp á yfirborðið og er tekið um borð.

 

Þetta heppnaðist nokkuð vel en var nokkuð tímafrekt þar sem beyta þurfti nokkrum brennslum á hvort dufl, en um kvöldmatarleytið skreið Náttfari til baka í Húsavíkurhöfn, veður var með eindæmum gott og flóinn skartaði sínu fegursta.

 

Um borð voru frá Norðursiglingu Ólafur Gunnarsson Vélstjóri og Hrólfur Þórhallsson Skipstjóri og frá háskólanum var forstöðumaður Rannsókna- og fræðasetursins og Doktor í sjávarspendýrafræði Marianne Rasmussen.

Það fljóta hér nokkrar myndir af þessum tilfæringum á Skjálfandaflóa.

 

Haldið af stað, Hrólfur Þórhallsson skipstjóri 

 

Og Víknafjöllinn blasa við í veðurblíðunni 

 

Dr Marianne að ná sambandi ! 

 

Kinnafjöllinn og Galti ennþá í vetrarskrúða 

 

Ólafur vélstjóri ásamt Marianne bisa við duflið 

 

Og Lundey 

 

Báðar komnar um borð og heim við brunum 

 

Doktorinn er bara nokkuð ánægð


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld