Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

31. mars 2010

Garšar ķ slipp !

 

 

Þann 31. mars fór farþegaskipið Garðar, sem Starfsmenn Norðursiglingar hafa verið að gera upp og breyta, upp í Húsavíkurslipp í fyrsta skipti.

Slipptakan gekk mjög vel, en langt er síðan svo stórt skip hefur sést uppi í slippnum, veður var ekki með hagstæðasta móti þ.e norðanátt og éljagangur.

Allt var vel undirbúið og til frekara öryggis var öðrum bát Norðursiglingar, Bjössa Sör, lagt við ankeri skammt framan við slippinn og höfð taug úr honum til að halda við Garðar meðan verið var að stilla hann af í slippsleðan og reyndist það vel.

Garðar mun verða nokkrar vikur í slipp, en menn voru á einu máli um að botninn liti vel út við fyrstu sýn, byrjað verður á að hreinsa botninn vel með háþrýstidælum svo verður hann þéttur ef þarf, og loks botnmálaður, einnig verða botnstykki skoðuð og hugað að stýrisbúnaði og eflaust ótal margt annað.

Það mun koma fólk frá Siglingastofnum og framkvæma skoðun á skrokknum og gefa út álit með tilliti til öryggis og haffæris þessa stærsta trébáts sem verður í notkun á Íslandi.

Við vorum á vappi með myndavélina þegar slipptakan fór fram og hér koma nokkur sýnishorn.

 

garðar

Allt að verða klárt 

  

garðar

Vélstjórarnir mættir,feðgarnir Hörður og Anton 

 

garðar

Og skipperinn Einar Magnússon 

 

garðar

Og hann sígur frá bryggjunni 

 

garðar

Áleiðis í slippinn 

 

bjössi

Bjössi Sör er tilbúinn að aðstoða Garðar í baksýn 

 

garðar

Hér má sjá taug á milli bátanna 

 

i slippnum

Óli stjórnar spilinu af festu ! og Alli á hliðarlínunni 

 

garðar

Kafarinn Heimir kemur upp úr kafinu og segir að það þurfi aðeins að rétta hann af 

 

garðar

Og það er gert 

 

garðar

Og upp skríður hann  

 

garðar

Kominn á pláss...eins og slipparar segja ! 

 

garðar

Þetta lítur allt vel út og við getum farið í Páskafrí ! 

 


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld