Fréttir Noršursiglingar
23. mars 2010
Garšar: Tankur, Lagnir, Mįlning
Við tökum reglulega púlsinn á köllunum um borð sem þurfa að leysa öll vandamál sem upp koma og jafnvel búa til ný og leysa þau svo líka. Já þeir virðast bókstaflega geta allt þessir garpar.
Á dögunum var komið fyrir nýjum skólptank undir þiljum í þar sem áður var lest. Þessi tankur tekur við öllu frárennsli frá salernum og vöskum, svo hægt sé að dæla úr honum þar sem hentar að gera það og ekkert skólp á að geta farið t.d í höfnina.
Leggja þarf nýjar lagnir í tengslum við þetta því svona tankur hefur ekki verið áður í þessum bát, þess má geta að það var Vélsmiðjan Grímur á Húsavík sem sá um smíðina og voru menn mjög ánægðir með þá vinnu og við sendum Grímsurum hér með góða kveðju.
En það þarf einnig að endurnýja vatnslagnir og Raflagnir og að því er unnið jöfnum höndum.
Myndir segja fleira en mörg orð.
HÞ
Nýji tankurinn kominn á sinn stað
Vatnslagnir endurnýjaðar, hér má sjá Rúnar og Tona að störfum
lagnirnar þurfa að koma undir gólfið í lestinni, sem óðum breytist í rými fyrir farþega
"það er komin tími til að tengja"
Óli og Rúnar smíða ný rör við nýjan tank
Það þarf líka beygjur á þessi rör
Dekkið hefur breyst í lagnasmiðju, Geirfinnur eitthvað að græja
En Jónas smíðar
Og Siggi leggur metnað sinn í málningu
Skuggalegur náungi
Brúin mjakast í rétt horf
Það þarf líka að stoppa og skipuleggja, Heimir, Jónas, Einar og Siggi í baksýn



























