Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

16. mars 2010

Steini

Eða Þorsteinn Jóhannesson eins og hann heitir fullu nafni, kom til starfa hjá Norðursiglingu á haustdögum 2009 eða nánar tiltekið 4 september.

 

Steini var ráðinn til að starfa við yfirstjórn félagsins og er núna titlaður Rekstrarstjóri bæði Norðursiglingar og veitingahússins  Gamla Bauks, en liðstyrk þurfti vegna ört vaxandi starfsemi og framkvæmda og það hefur sannarlega verið í mörg horn að líta hjá yfirstjórn rétt eins og öðrum starfsmönnum.

 

Við forvitnumst aðeins um eintaklinginn Þorstein Jóhannesson, og fengum að vita að hann hefur reynslu af eigin rekstri í framleiðslu og byggingariðnaði og hefur sótt nokkur námskeið í stjórnun og fjármálum undan farin 10 ár, þetta nýtist honum auðvitað vel í núverandi störfum.

 

Pilturinn er uppalin í sveit, í útsveitum Borgafjarðar þ.e á Mýrunum, en hleypti heimdraganum snemma og haslaði sér völl í höfuðborginni, þar til að leiðin lá til Húsavíkur og hér segist hann kunna vel við sig og tekur fram að þetta sé fallegur staður í mörgum skilningi.

Steini hefur þegar stimplað sig inn í samfélagið og tók þátt í að stofna Körfuboltafélag Þingeyinga og segist með nokkru stolti vera í stjórn K.Þ.

 

Hann er einnig áhugamaður um söng, en Steini er tenor, og hefur stundað nám í söng um nokkurra ára skeið og er nú í læri hjá Hólmfríði Ben.

Hann syngur einnig með Karlakórnum Hreim en var á sínum tíma meðlimur í Raddbandafélagi Reykjavíkur og fór með þeim félagsskap í söngferðalög um austur Evrópu og víðar.

HÞ  

 

steini        


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunumSkrįš gęšavottun frį Lloyds


Mynd

  • Nįttfari aš halda sér

  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld

Fįnar

In English