Fréttir Noršursiglingar
9. mars 2010
Hśsavķkurslippur
En nú er komin hreyfing á hlutina og nú er unnið að því að koma þeim niður og fór Haukurinn niður á mánudag en bjössi Sör sem er á hliðarbraut verður þar enn um sinn eða á meðan unnið er að viðhaldi á slippnum, fara yfir og endurnýja svokallaða hlunna þ.e stokkana sem bátarnir hvíla á.
Að því loknu er fyrirhugað að taka Náttfara upp í skamman tíma til botnhreinsunar svo fara bæði hann og Bjössi Sör niður og gert klárt til að taka á móti Garðari, sem er stærsti báturinn og hefur ekki áður farið upp í Húsavíkurslipp.
Sökum grynninga framan við slippinn verður að bíða með að taka Garðar upp þar til á næsta stórstraumsflóði eða í lok þessa mánaðar.
HÞ
Haukur og Bjössi í slippnum
Bjössi Sör er nánast tilbúinn
Haukur fór niður tveim dögum eftir þessa mynd
Bjössi Sör orðin aleinn
Geirfinnur smyr í hjólin
allir alvöru slippar hafa sína bifreið


























