Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling

Fréttir į vef Noršursiglingar

28.1.2010

Svartibakki

 

Síðla hausts 2009 ákvað fyrirtækið Norðursigling að ráðast í tölverðar breytingar á skrifstofuhúsnæði félagsins, sem staðsett er í nýlegri og glæsilegri byggingu bak við veitingahúsið Gamla Bauk, og er í daglegu tali nefnt Svartibakki.

 

Breytingarnar fólust í því að nýta húsnæðið betur og mæta þar með vaxandi þörf sökum ört vaxandi starfsemi og umfangi fyrirtækisins. Ákveðið var að leita til hins húsvíska byggingafélags Norðurvíkur sem tók verkefninu fagnandi.

 

Fyrst þurfti að hanna og teikna upp breytingarnar og niðurstaðan var að Heimir Harðarson Markaðsstjóri Norðursiglingar teiknaði og hannaði innréttinguna, en hann á að baki nám í hönnun. Almenn sátt ríkti um niðurstöðuna og Norðurvíkurmenn einhentu sér í smíðina og voru einingar smíðaðar á verkstæði Norðurvíkur, 8 Desember 2009 var svo byrjað að púsla þessu saman inn á skrifstofu og var því að mestu lokið um miðjan Des þannig að hægt var að nota húsnæðið, en endanlegum frágang var svo lokið um miðan Janúar 2010.

 

Starfslið skrifstofunnar í Svartabakka og aðrir sem þar eiga erindi eru hæst ánægð með hvernig hefur til tekist, húsnæðið nýtist mun betur og andrúmsloft hið besta.

Norðursigling vill nota tækifærið og senda þeim Norðurvíkurmönnum og konum bestu kveðjur fyrir frábær störf og skjót viðbrögð.

 

Við látum fljóta nokkrar myndir sem teknar voru fyrir og á meðan breytinum stóð og einnig eftir að þeim lauk.

 

gert klárt fyrir breytingar

Gert Klárt fyrir nýjar innréttingar.

 

Diddi og Simmi á Norðurvík

Diddi og Simmi á Norðurvík

 

á Norðurvík

Fagmennska í fyrirrúmi

 

Sigga

Sigga byrjuð að raða upp fyrstu hillunum.

 

nafni

Hörður Jóhannsson reddar rafmagninu.

 

Heimir og Hörður

Innréttingar óðum að taka á sig mynd.

 

lok framkv.

Allt komið á sinn stað.

 

loka frágangur

glæsileg vinnuaðstaða.



Mynd


Leturstillingar:

Texti ķ sjįlfgefinni stęršTexti ķ mišlungs stęršTexti ķ stórri stęršAušlestrarhamur

Fįnar

In English