Fréttir á vef Norðursiglingar
28.1.2010
Góður gangur á dönsku vígstöðvunum
Vinna við Hildi, tilvonandi skonnortu, gengur vel í C.J. Skibs- og Bådebyggeri slippnum í Egernsund, Danmörku.
Á hverjum degi eru rúmlega 10 manns við vinnu í slippnum, danir sem og nokkrir Íslendingar frá Húsavík og nágrenni. Fremur kalt hefur verið í veðri og reyndar talsvert kaldara þar en hér á Húsavík síðustu daga. En vinnuaðstæður eru með ágætum og hefur verið byggt yfir bátinn til að skýla fyrir veðri og vindum.
Hér koma nokkrar myndir teknar síðustu daga en fleiri myndir má skoða hér.
ÞH
Guðmundur skiptir um nokkrar spýtur í hádekkinu.
Séð af hádekki aftur með bátnum.
Verið að síkka kjölinn.
Hildur yfirbyggð að hluta í slippnum.
Niðurgangan hífð um borð.
Kappi og niðurganga í vinnslu.










