Fréttir Noršursiglingar
5. janśar 2010
Knörrinn II
Knörrinn II.
Á vordögum 2009 var hafist handa við að útbúa sérsýningu í Hvalasafninu á Húsavík, tileinkaða hvalaskoðun á Skjálfanda. Hugmyndin gekk útá að gestir safnsins kæmu inn í sérherbergi og myndu stíga upp á stefni á eftirlíkingu af hvalaskoðunarbát og virða fyrir sér myndefni tengdu hvalaskoðunarferðum.
Fyrirtækið Norðursigling bauð fram krafta sína og bauðst til að láta smíða nákvæma eftirlíkingu af stefni fyrsta báts félagsins, Knerrinum, og var þeirri hugmynd vel tekið.
Það var ekki tilviljun að Knörrinn var valin til að þjóna þessu hlutverki þar sem hann er fyrsti báturinn á Íslandi þar sem boðið var upp á fastar áætlunarferðir í hvalaskoðun, þó að einhverjir hafi verið búnir að prufa sig áfram í þá áttina. Knörrinn var keyptur til Norðursiglingar árið 1994 og var unnið að uppgerð og breytingum á honum það ár og ætíð verið vel við haldið síðan. Báturinn var smíðaður á Akureyri 1963, sem hefðbundinn fiskibátur og var, og er enn, mikið happafley og með honum hafa tugþúsundir farþega haldið á vit náttúrunar á Skjálfandaflóa.
Snemmsumars 2009 var Eggert Jóhannsson smiður og Húsvíkingur, uppalin og ættaður norðan af Langanesi, ráðinn til verka hjá Norðursiglingu og má segja að hans aðal verkefni hafi verið að smíða þessa eftirlíkingu af bát sem við getum kallað Knörrinn II á Hvalasafninu. Hlé var gert á framkvæmdum yfir há-anna tímann á safninu og Eggert snéri sér að annari smíðavinnu fyrir félagið, því næg verkefni eru fyrir slíka völunda hjá Norðursiglingu.
Síðla hausts 2009 hófst Eggert handa á ný við að smíða Knörrinn II og miðar verkinu vel áfram og verður efalítið lokið í vor þegar ferðamenn taka að streyma að nýju um götur og kæja Húsavíkur.
Rétt fyrir jólin tókum við hús á Eggert (skipa)smið og hans aðstoðarmanni, Antoni Harðarsyni sem er Akureyringur en unir sér að sjálfsögðu best á Húsavík og tókum nokkrar myndir sem fylgja hér með.
HÞ
Vandað tréverk.
Borðstokkar að taka á sig mynd.
Anton og Eggert eru einbeittir menn.
Já þetta er allt að koma.



























