Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

22. desember 2009

Rķfandi gangur, og fólk į leiš ķ kęrkomiš jólafrķ.


Það má með nokkrum sanni segja að haustið hafi verið árangursríkur tími hjá Norðursiglingu, framkvæmdir hafa verið miklar og raunar aldrei verið meiri í sögu félagsins. Fyrst er að telja , breytingar á skonnortunni Hildi í Danmörku, en samkvæmt nýjustu fregnum þaðan er góður gangur í verkinu, en um áramót munu nokkrir starfsmenn Norðursiglingar halda utan til starfa og vera þar með hléum til verk loka og markmiðið er að koma brunandi heim til Húsavíkur á vormánuðum, vonandi undir seglum þöndum, við sem verðum hér á Húsavík,  sendum þessum útrásar-víkingum, okkar bestu baráttu kveðjur.

Framkvæmdir við breytingar á skrifstofuhúsnæði félagsins standa yfir þessa dagana, nýjar innréttingar og fl. sem trésmiðjan Norðurvík sér um að smíða og munum við gera því verki betri skil hér á vefsíðunni, að verki loknu.

Aðalverkefnið og það stærsta, er svo vinnan við að breyta eikarbátnum Garðari í alhliða farþegaskip, sem kemur til með að geta flutt 120-150 farþega í hvalaskoðun.
Breytingar þessar eru mikið verk og að mörgu þarf að hyggja, óhætt er að fullyrða að verkið hefur gengið ákaflega vel og farið raunar fram úr björtustu vonum, til að mynda eru mörg stærstu einstöku verkin búin eða að klárast, eins og dekk, borðstokkar, þak á stýrishúsi, innréttingar í brú langt komnar, auk þess sem vélarúm er langt komið, en þar liggur mikil vinna að baki við að endurnýja rafmagn, lagnir, dælur og svo framv., listinn er nánast endalaus.
Þarna hefur vösk sveit unnið mikið verk nú á haust mánuðum, og hægt er að skynja nokkura tilhlökkun hjá mönnum að komast í hátíðarfrí, hvílast og borða mikið af góðum mat, því þarna eru á ferðinni garpar sem vinna mikið og borða vel !

Við litum við um borð í Garðari og á skrifstofunni, en þar voru menn í 10 kaffinu og skófluðu í sig kaffi og brauði auk þess að segja sögur, sem við höldum að séu flestar sannar.
Við smeltum nokkrum myndum á ferð okkar um athafnarsvæði Norðursiglingar þ.e Íslands-deildina, og fylgja þær hér með.

Kaffitími í Svartabakka

Kaffitími í Svartabakka.

 

Hörður Jóhannss, Einar og Alli við lagnavinnu í vélarúmi

Hörður Jóhannss, Einar og Alli vinna við lagnir í vélarúmi.

Framkvæmdir í brú

 Framkvæmdir í brú.

Jónas að vinna við brúarþak

Jónas að vinna við brúarþak.

Siggi Hákonar að vinna við brúarþak

Siggi Hákonar að vinna við brúarþak.

Garðar við bryggju

Garðar við bryggju á Húsavík.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld