Fréttir Noršursiglingar
16. desember 2009
Ólafur Gunnarsson
Talsvert af nýju starfsfólki kom til starfa hjá Norðursiglingu á árinu sem er að líða og einn af þeim er Ólafur Gunnarsson eða Óli eins og hann er kallaður.
Óli kom til Húsavíkur 2. ágúst í sumar, til að starfa fyrir Norðursiglingu og vann sem skipstjóri við hvalaskoðun til enda ágúst mánaðar og síðan sem verkamaður, við öll tilfallandi störf en þó mest það sem viðkom vélbúnaði, þar sem Óli er vanur bíla og vélaviðgerðum.
Undanfarna mánuði hefur Óli verið, eins og reyndar vel flestir starfsmenn fyrirtækisins, um borð í Garðari, sem er annar af tveimur bátum, sem fyrirtækið er að gera upp, og sá stærsti í flota Norðursiglingar, þar má oftar en ekki, sjá Óla með slípi-rokk í hönd eða við að snitta rör og svo framvegis.
Á haustmánuðum flutti Óli alfarið til Húsavíkur, og tók á leigu íbúð á Höfðaveginum, í gömlu tvískiptu húsi sem heitir Dvergasteinn og unir þar hag sínum vel, segist kunna mjög vel við bæinnog fyrirtækið sem hann vinnur hjá og hann á von á trillunni sinni fljótlega, og þá má segja að Óli sé búnn að hreiðra um sig til frambúðar.
Þess má geta, til gamans, að Óli er einarður stuðningsmaður Liverpool, og grætur krókódílatárum þessa dagana.
Látum hér fylgja með nokkrar myndir sem teknar voru í vikunni af Ólafi Gunnarssyni við leik og störf.
HÞ
Óli og Bjössi Sör á Gamla Bauk.
Óli spáir í spilin um borð í Garðari
í fullum skrúða um borð í Garðari



























