Fréttir Noršursiglingar
15. desember 2009
Jólagleši Noršursiglingar
Þann 11. des. síðastliðin bauð fyrirtækið Norðursigling öllum sínum vetrarstarfsmönnum, ásamt mökum í jólaveislu Gamla Bauks. Það reyndist vera fjór-rétta veislumáltíð framreidd af landsliðskokknum og Húsvíkingnum Gústaf Axel Gunnlaugssyni og er óhætt að segja að viðtökur hafi verið góðar, matnum voru gerð góð skil og var það mál manna, að sjaldan eða aldrei hefði verið snæddur betri veislumatur. Undir borðhaldi lék Aladár ljúfa píanótóna og að matnum loknum stigu þeir félagar Hafliði og Frímann á svið. Við hjá Norðursiglingu sendum að sjálfsögðu þakklætiskveðjur til starfsfólks Gamla Bauks, fyrir frábæra frammistöðu.
Starfsfólk Norðursiglingar hóf kvöldið með því að safnast saman í skrifstofuhúsnæði fyrirtækisins og þáði þar léttar veitingar og horfðu á frumsýningu nýs kynningarmyndbands um starfssemi félagsins. Myndband þetta er afrakstur margra ára vinnu nokkurra starfsmanna en mestan þátt átti þó hinn þýsk-ættaði Martin Varga sem starfað hefur hjá félaginu undanfarin ár og hann sá um að klippa efnið saman, fyrir utan að hafa verið með myndavélina á öxlinni meira eða minna í nokkur ár. Vel var mætt í Jóla veislu Gamla Bauks og voru öll borð þéttskipuð í Skipasmíðastöðinni því að fyrir utan starfsfólk Norðursiglingar voru fjölmargir aðrir gestir, bæði heimamenn og lengra að komnir.
Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru um kvöldið.
HÞ
Jónas, Eddi og Rósa njóta.
Gustaf Axel Gunnlaugsson matreiðslumeistari
Freyja ber fram krásirnar
Aladár Rácz við píanóið
Frímann og Hafliði


























