Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

9. desember 2009

Noršursigling styrkir ólympķufara

Stefán Jón Sigurgeirsson skíðamaður, starfaði sl. sumar hjá Norðursiglingu við ýmis viðhalds- og framkvæmdarstörf. Síðastliðið haust gerðu Norðursigling og Stefán með sér styrktarsamning þar sem Norðursigling leggur honum til fjárstyrk og mun merki félagsins prýða keppnishjálm kappans í vetur. Ég settist niður með Stefáni á dögunum og spurði hann út í það sem framundan er hjá honum.

 

Stefán hefur í vetur stundað æfingar erlendis frá því seinnihluta sumars þar sem hann fór til Ástralíu og Nýja-Sjálands og í lok október æfði hann í Austurríki, Þýskalandi og Noregi. Þessa dagana hefur Stefán verið við æfingar í Hlíðarfjalli á Akureyri. Stefán hefur verið að gera það gott á stórmótum undanfarið og keppti hann á HM í Frakklandi í febrúar sl. þar sem hann var meðal 25 kependa sem komumst áfram úr undankeppni í svigi og stórsvigi. Í nóvember lenti hann í 17. sæti í risasvigi á FIS-móti í Hemsdal í Noregi og var efstur meðal íslensku keppendanna.

 

Næsta stóra verkefni Stefáns eru Vetrarólympíuleikarnir í Vancouver í Canada í febrúar á næsta ári en þar hefur hann nú þegar náð lágmarki í svigi og er mjög nálægt því í risasvigi og tvíkeppni. Stefán hefur því tækifæri á að safna nauðsynlegum punktum á mótum í janúar til að komast ofar á heimslistann en það er viðmiðunin sem notuð er fyrir Ólympíuleikana.

 

Það eru því stór og spennandi verkefni framundan hjá Stefáni og óskum við honum velgegni í þeim verkefnum sem framundan eru og vonumst til að sjá hann hressan og kátan á Húsavík næsta sumar.

 

ÞH

 

Stefán við vinnu hjá Norðursiglingu
Stefán Jón við viðhaldsstörf hjá Norðursiglingu í sumar

 

Stefán í braut
Stefán á góðu skriði í svigi

 

Stefán á Nýja Sjálandi
Við æfingar á Nýja Sjálandi


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld