Beint į leišarkerfi vefsins
Noršursigling - Hśsavķk

Fréttir Noršursiglingar

18. nóvember 2009

Egernsund: Vinna viš skonnortuna Hildi heldur įfram

Síðustu vikur hafa 4 Íslendingar á vegum Norðursiglingar starfað við slippinn í Egernsund í Danmörku þar sem breyta á nýjasta bát fyrirtækisins, Hildi í skonnortu.

 

schoonerfrett-mid nov
Hildur um miðjan nóvember

 

Íslendingarnir hafa nú unnið við niðurrif á öllu því sem ekki verður notað s.s. gömlu og ryðguðu stýrishúsi sem vegur um 7 tonn en einnig V8 Caterpillar vél.

 

schoonerfrett-bru og vel ad lenda
Stýrishús og vél á ferðinni

 

schoonerfrett-verkstaedi og kontor
Stýrishúsið þjónar nú sem "skrifstofa" og gámurinn er "verkstæði"

 

 

Okkar menn eru vanir með kúbeinið og gengur niðurrifið vel en þeir munu einnig taka þátt í uppbyggingunni s.s. niðursetningu nýrrar Scaniu sem og hönnun og uppsetningu á nýju rafkerfi.

Það er hins vegar Christian Jonsson skipasmiður og hans menn sem bera ábyrgð þegar kemur að smíði reiðans og þeir munu einnig skipta um ónýtar styttur, borðstokka og planka. Á verkstæðinu þeirra í slippnum eru möstrin 2 að taka á sig mynd og eru glæsileg á að líta. Þau munu rísa um 20 metra yfir sjávarmál og hafa styrk til að bera u.þ.b. 225 fermetra segldúk í samtals 7 seglum.

 

schoonerfrett_mostur 11 nov
Möstrin í smíðum. Hér sjást um 2/3 af möstrunum sem verða um 18 og 20 metrar á hæð.

 

Slippurinn hans Christian er mekka tréskipa og starfsmennirnir þar búa yfir mikilli reynslu. Það spillir heldur ekki fyrir að eigendur og áhafnir Dagmar Aaen, Bodil og Carmelan sem eru skútur af svipaðri stærð og Hildur, eru okkar mönnum innan handar í einu öllu.
Þó að veðrið hafi verið fremur leiðinlegt síðustu vikur þar sem rigningin hefur verið í aðalhlutverki eru menn bjartsýnir á framhaldið og með góðra vina hjálp virðist sem allt sé mögulegt.

 

Heimir

 

schoonerfrett-hildur lettist


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd

  • Nįttfari og hnśfubakur


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld